Nokia Bluetooth Headset BH 218 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Þetta tæki er með innbyggða, fasta, endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar sem það getur

skemmt tækið.

Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-4, AC-5, AC-8, AC-11, AC-15, DC-4 og

DC-9 . Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd með einu af

eftirfarandi: E, X, AR, U, A, C, K eða B.

8

background image

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér.

Tal- og biðtími er einungis til viðmiðunar. Raunverulegur tími er t.d. háður stillingum tækisins, aðgerðum sem eru í notkun,

ástandi rafhlöðunnar og hitastigi.

Ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja

það aftur til að hægt sé að hefja hleðsluna.

Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum.

Þegar hleðslutækið er ekki í notkun skal taka það úr sambandi við rafmagnsinnstunguna og tækið. Ekki má hafa fullhlaðna

rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt

og smátt ef hún er ekki í notkun.

Rafhlaðan skal alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma

rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir.

Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Aðeins skal nota hleðslutækið til þess sem það er ætlað. Röng notkun eða notkun ósamþykktra hleðslutækja getur valdið

eldhættu, sprengingu eða haft aðra áhættu í för með sér og öll ábyrgð og samþykktir kunna þá að falla niður. Ef þú telur að

hleðslutækið hafi skemmst skaltu fara með það til þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að nota það. Aldrei skal

nota skemmt hleðslutæki. Hleðslutækið skal aðeins nota innandyra.